Náttúran í náttúrunni

   Mér hefur alltaf dauðlangað að fara í safarí ferð og ekki væri verra ef maður myndi verða vitni af brjáluðum uppáferðum og hormónaflæði eins og þetta góða fólk virðist hafa fengið að upplifa, ég get ekki betur séð en þau séu að fíla þetta W00t

Fíll að fíla fíl

 


Ha hvað er að ské bara blogg frá kallinum !!!

Djöfull er langt síðan ég hef krafsað eitthvað niður á þessa síðu, en svo virðist sem facebook hafi drepið bloggsíðurnar hverjar á fætur annarri Crying

Það er margt búið að breytast síðan ég hripaði síðast niður línu hérna, er hættur að vera sveittur grásleppukall og línupungur.  Prófaði að vera togarajaxl í smá tíma en gekk svo aftur í barndóm og er nú sveittur við að safna unglingabólum til að falla betur inní lífið hér í Verkmenntaskólanum á Neskaupstað.  Já ég er fluttur frá Vestfjarðarkjálkanum alla leið austur á afturpart Íslands nánar tiltekið á Fáskrúðsfjörð en um virka daga bý ég á Neskaupstað á heimavistinni þar og ótrúlegt en satt þá er ég ekki aldursforseti þar.  Er að læra að verða rafvirki og klára stúdentsprófið í leiðinni en ég átti alveg skammarlega lítið eftir af því en ég var bara í árs fríi frá skóla en það vatt víst ansi mikið upp á sig.

Hélt ég ætlaði að missa legvatnið af stressi þegar skólinn var að fara að byrja enda var ég búinn að reikna út að allir samnemendur mínir í grunndeild rafiðna væru 16 ára sem myndi þíða það að ég hefði verið byrjaður í menntaskólanum á Ísafirði þegar þeir voru ennþá í móðurkviði.  En svo var ekki og er ég langt frá því að vera gamli kallinn í tímunum og þegar upp er staðið er þetta bara helvíti fínt, allavega skárra en að vera lokaður með 13 skörfum í járnkassa út á ballarhafi í skítaveðri lungað úr árinu Devil

Ætla að birta nokkrar myndir úr skólanum, nánar tiltekið af busuninni

 Hér er verið að busa liðið, það er hent í það allskonar viðbjóði og níðst á busunum Bandit

 

 
Þurftu að hlaupa í kringum keilu þangað til þau sáu hringi og svo fara beint ofan í kar fullt af viðbjóði
 
 

 Hér eru busarnir látnir fara ofan í kar með allskonar viðbjóði og þau þurfa að fara á bólakaf engin miskunn gefin Tounge

  Kar fullt af viðbjóði

Svo þurftu þau að skríða í gegnum alls konar viðbjóð og drullu um leið er öskrað á þau stanslaust Devil

 
Þarna voru þau látin standa við bryggjuendann og látin halda að þau ættu að hoppa í sjóinn Devil
 
 
Nú er það ógeðisdrykkurinn frægi en margir ældu eftir hann Sick
 
  'ogeðisdrykkur
 
Svo að lokum þá er ein mynd af yfirbusanum sjálfum meðan á busuninni stóð en af einhverjum ástæðum þá fannst ég ekki og slapp þar af leiðandi, böðlarnir hafa kannski ekki leitað nógu vel Halo
 
Algjör hetja

 


Vangaveltur

Er búinn að spá mikið í efnahagsástandinu undanfarið en nú er það orðið þannig að erlendis fær fólk sömu ónotatilfinninguna við að sjá Íslending með veski í hendi og araba með sprengjubelti um sig miðjan.  Við efnahagsuppbygginguna hérna var ákveðið að notast við sömu aðferð og pýramídafyrirtækin hafa notast við í gegnum tíðina og er þekkt fyrir að springa með látum þar sem aðeins þeir fyrstu græða en allir aðrir blæða.  Fólk hefur verið að kaupa sér ótrúlegustu hluti fyrir peninga sem það á ekki og hefur fengið að láni í annarri mynt en þeirri mynt sem það fær borgað í, en sú mynt er orðinn að afbragðs skeinupappír í dag og flestir sokknir í skít upp að öxlum eftir að hafa fylgt straumnum og hlustað á ráðleggingar bankanna.

Nú er það orðið svo að eina sem getur bjargað okkur frá glötun er að það finnist olíuauðlindir á Drekasvæðinu fyrir austan land en sérfræðingar segja að þar sé líklega að finna álíka miklar auðlindir og eru í norðursjó en þær olíuauðlindir hafa gert frændur okkar Norðmenn að ríkustu þjóð Evrópu.  Ég fór að spá í hvernig við Íslendingar mundum bregðast við því?                             

Mundum við taka Norðmenn til fyrirmyndar og hafa olíufyrirtækin í ríkiseigu og nota peninganna til að byggja upp velferðarkerfið og styrkja innviði samfélagsins.  Eða taka furstadæmin við botni miðjarðarhafs til fyrirmyndar og láta fáa útvalda deila með sér gróðanum þannig að þeir gætu haft fjórar einkaþotur í innkeyrslunni sem væri staðsett við hliðina á þyrlupallinum.

Ég þurfti ekki að spá lengi í þetta enda hafa Norðmenn alltaf verið hallærislegir enda megnið af þeim með sítt að aftan.  Auðvitað væri skemmtilegra að fylgjast með útvöldum fjársterkum löndum manns kaupa lið í ensku knattspyrnunni og sigra heiminn í krafti Íslensks olíuauðs enda hefur aldrei neitt slæmt sprottið fram í kjölfar kröftugrar einstaklingshyggjuW00t

Landsbankinn að sýna sitt rétta andlit

Loksins eru þeir byrjaðir að nota réttan fána!


Húmor

Var að skoða myndbönd á Youtube og rakst á þetta myndband hér, ég hélt að ég hefði verið bráðþroska þar sem maður byrjaði að raka sig 12 ára en þessi virðist hafa fengið hvolpavitið í vöggugjöfWhistling .

Klukkaður

Ég var klukkaður af Hallgrími Guðmundssyni og nú er bara að reyna að koma því skikkanlega frá sérWhistling.

 

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

Sjómaður á alls konar bátum, litlum sem stórum.

Markaðsfulltrúi (fallegt orð yfir sölumaður) hjá auglýsingarfyrirtæki.

Á trésmíðarverkstæði úti í Noregi.

Í ljósabúð í Reykjavíkinni.

 

Fjórar bíómyndir sem eru í uppáhaldi:

Trainspotting, Sin City, Lord of the Rings og Boondock Saints.

 

Fjórir sjónvarpsþættir sem eru í uppáhaldi:

Heimildarþættir, Dýralífsþættir, Ensku mörkin og allir Liverpool leikir sem ég kemst yfir að sjá!!!

 

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

Bergen í Noregi, Sogndal í Noregi, Skagaströnd og Sauðárkrókur, þetta er reyndar brot af þeim plássum sem ég hef búið á.

 

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

Liverpool en ég sá Liverpool liðið vinna Chelsea 1 - 0 og brá mér svo yfir til Manchester og sá United tapa á móti Middlesborough á heimavelli sælla minningarGrin.

Sunny Beach í Búlgaríu.

Feneyjar á Ítalíu.

Slatti af stöðum á Spáni.

 

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:

Kop.is, vísir.is, mbl.is og fotbolti.net

 

Fernt sem ég held upp á matarkyns:

Svínahamborgarahryggur að hætti mömmu, grillaður höfrungur, vá það er svo margt annað að ég get ekki gert upp á milli.

 

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:

Les nú vanalega bækurnar bara einu sinni.

 

Fjórir bloggar sem ég ætla að klukka

Baldur Brainiac Einarsson

Dagbjört stóra systir Ásgeirsdóttir

Guðrún skvísa Brynleifsdóttir

Rúnar skurðari Guðmundsson

 

Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:

Phuket eyja í Thailandi.

Rio de Janero í Brasilíu.

Dubai í Sameinuðu Arabísku furstadæmunum.

Machu Picchu í Perú en það er gömul yfirgefin Inka Borg sem fannst ekki fyrr en árið 1867 enda vel falin í hlíðum Andersfjallanna.

Image:Peru Machu Picchu Sunrise.jpg

 

 

 

 

 

 


Into the wild

Mig hefur ekki langað jafn mikið í einn geisladisk svo árum saman eins og nýja diskinn með Eddie Vedder þar sem hann gerði lögin fyrir myndina Into the wild, en hún fjallar um gæja sem er kominn af efnaðri fjölskyldu en ákveður að gefa skít í allt og stinga af og lifa á náttúrunni.  Algjört meistaraverk þessi ræma og eftir hana ákvað ég að ég yrði að eignast þennan disk.  En það virðist vera svo að ég sé ekki einn um þessa skoðun því að ég er búinn að gera nokkrar heiðarlegar tilraunir til að finna hann í plötubúðum og þar er mér sagt að hann sé rifinn úr hillunum um leið og hann kemur, já allstaðar uppseldur sem er kannski ekki furða en alveg ótrúlega pirrandiDevil.

Smá sýnishorn, fyrra lagið er nánast annað hvert lag sem er spilað í útvarpinu í dag enda þrælgott.

Eddie Vedder - Society

Eddie Vedder - Guaranteed

In to the wild

Ef þið hafið ekki séð hana farið og leigið hana!!!


Nýr bíll

Er nýlega kominn heim eftir nokkurra daga útlegð á suðvesturhorninu en ástæðan fyrir ferðalaginu var sú að ég var að splæsa í nýjan bíl en gamla góða græna þruman mín gaf upp öndina fyrr í sumar.  Er byrjaður að taka eftir miklum mun á eyðslu bílanna og hef ég einnig tekið eftir því að olíuverð á heimsmarkaði er loksins byrjað að síga niður á við eftir mikinn stíganda á tímum þrumunnar, of ótrúlegt til að geta verið tilviljun!!!

Ég gisti í Sandgerði í góðu yfirlæti Ara og Mæju þar sem þau fóru hamförum á grillinu en það voru grillveislur föstudag og laugardag enda ekki Sandgerðisdagar á hverjum degi.  Eina sem setti strik í helgina var að af og til þá skall á útlensk rigning, það var eins og það væri hellt úr fötu.  En annars frábær helgi, frábær matur og frábært ball með Á móti sól.  Eftir helgina færði ég mig yfir til hennar Reykjavíkur og plataði Jóa félaga minn til að þræða bílasölunnar með mér. Ég splæsti miklu dýrari drossíu en planað hafði verið og er þetta í fyrsta skipti sem ég kaupi ekki algjöra druslu fyrir einhverja skiptimynt, reyndar á maður eftir að sakna þess að vera ekki á bíl sem að allt getur gerst, maður missir algjörlega af ævintýrum eins og að þurfa að ganga til byggða, sofa í bílnum eða að hann festist í fyrsta gír á miðri leið en þetta eru allt móment sem gefa ferðalögunum litWink.

Smá vídeó, fólk er fíflW00t


Hittingur

Helgin byrjaði glæsilega eins og hjá flestum hérna á klakanum með því að ég horfði á Íslendinga hreinlega snýta sér á Spánverjum í handboltanum en þessi sigur varð til þess að ég sveif inn í helgina í mikilli sigurvímu.  Þar sem ég hef átt í smá vandræðum með rafmagnið hjá mér undanfarið þá vatt ég mér að rafmagnstöflunni eftir leik og reif eitt öryggi úr rafmagnstöflunni hjá mér til að fara með til rafvirkjans og splæsa í eitt alveg eins, komst ekki strax til hans og þegar ég fór þá var hann ekki við þannig að ég skellti mér á Ísafjörð og kom ekki heim fyrr en nokkrum tímum seinna.  Ég er varla búinn að loka útidyrahurðinni hjá mér þegar það er bankað og fyrir utan stendur nágranninn minn og er allt annað en ánægður með mig og komst ég þá að því að ég er víst allt annað en einn um þessa rafmagnstöflu, ég átti víst ekkert í þessu öryggi sem ég fjarlægði og að ástæðan fyrir því að rafvirkinn var ekki við var út af því að hann var víst heima hjá mér að grúska í rafmagnstöflunni þar sem hann komst að þeirri niðurstöðu að það hafði verið einhver vitleysingur sem hafði átt við öryggin í töflunniBlush.  Átti ég engan annan kost í stöðunni en að gera mig eins aumingjalegan og ég gat og játa á mig fáviskuna og óþverraskapinn í mér enda aumingja konan búin að vera rafmagnslaus í nokkra klukkutíma!!!

Um kvöldið var svo planaður hittingur en það voru tvær gamlar vinkonur að fara að kíkja í heimsókn hingað vestur og var haldið smá húllumhæ í tilefni af því þar sem gamla gengið ætlaði að rifja upp gamla tíma, kannski ekki vanþörf á enda hafði ég ekki séð skvísurnar í yfir 10 ár og úr varð þetta heljarinnar fyllerí þar sem margir gerðu sig að fíflum en mismiklum þó.  Daginn eftir var svo planað grill klukkan 6 hjá útigrillinu hjá tjaldsvæðinu hér í Víkinni þar sem við ætluðum að reyna að rifja upp atburði næturinnar og nú var komið með allan krakkaskarann nema að ég átti bara að koma með sjálfan mig.  Mæti ég fyrstur og fæ mér sæti á bekk niður á svæði og rétt eftir að ég er sestur þá smellur fyrsti regndropinn í andlitinu á mér og lít ég á klukkuna en þá er hún 18:00, gat ekki verið nákvæmara.  Í tilefni af því þá redduðum við gasgrilli einn tveir og bingó og færðum veisluna í heimahús þar sem hún var sett með miklum gasblossa sem lýsti upp svalirnar.  Dúndur helgi, þrælgott partý og heljarinnar átveisla, eina sem vantaði til að toppa þetta var ólimpíugullið á sunnudeginumDevil.

Allir í góðum gír að drekka sig til fyrir pöbbannSkvísurnar Dóra og GuðrúnBjartur og meistarinnBjartur að taka nett yppon á Robba

 


Þegar veskið tapaði lífinu

Palli heppni kíkti í göngutúr með Berta skrítna og hundinum hans upp að surtarbrandshellum sem staðsettir eru inn í Syðridal í Bolungarvík síðastliðinn föstudag, á leið okkur verður á sem við ætluðum okkur yfir og sjáum við þrengingar á henni og Berti tekur svaka stökk og svífur yfir hana.  Næstur á meistarinn að stökkva og tek ég æðisgengið tilhlaup í átt að ánni og finn hvernig veskið mitt spennist við og tekur sér stöðu í vinstri jakkavasanum, ég geysist á stað og spyrni mér í bakkann og svíf fimlega á stað yfir ólgandi fljótið, í loftinu lít ég mér á vinstri hönd og sé hvernig veskið mitt hefur misst sig í æsingnum og er búið að spyrna sér úr jakkavasanum og var byrjað að veita mér veglega keppni um það hver myndi hafa betur í keppninni yfir á hinn árbakkann, lengi vel svífum við samhliða en að lokum fór það svo að ég hafði betur en veskið sem var aðeins hársbreidd frá því að drífa yfir og hvarf ofan í straumharða ána og ekki krækiber í helvíti að finna það aftur.  Ökuskírteinið, debet, kredit, útgerðar og hvað öll þessi kort heita létu sig hverfa korter yfir fjögur á föstudegi en það er einmitt tíminn sem alla dreymir um að standa uppi peningalausir, en ef maður lítur á björtu hliðarnar þá var það ég sem dreif yfir en ekki öfugtDevil.  En hellarnir eru mjög flottir, auðvelt að komast að þeim og örugglega hægt að rekast á veskið á leiðinni og jafnvel hægt að strauja einhver kortanna ennþá þannig að ég mæli með þessari gönguleið og þá helst ef farið er réttu megin við ána en þannig er hægt að sleppa við alla loftfimleika!!!

Annars er bara allt fínt að frétta af mér, fyrir hálfum mánuði fórum við með fólk í sjóstangveiðimót hérna fyrir vestan og var það þrælgaman og vorum við annar aflahæsti báturinn í mótinu, keppnin tók tvo daga og endaði með mat og verðlaunaafhendingu á Kaffi Edinborg á Ísafirði og þaðan var haldið á Ný Dönsk í íþróttahúsinu hér í Víkinni, ég hef aldrei á ævinni farið á ball þar sem hefur verið jafn dimmt inni en þetta var svona svipaður fílingur og var í surtarbrandshellunum nema að það var bar á ballinu sem var betur fer ekki upp í hellunum þar sem ég var veskislaus! en ballið var þrátt fyrir þetta þrælgott enda gott veður fyrir utan og nóg af liði til að bulla í þar.  Þetta sýnir best hversu vonlaus maður er í blogginu, röflandi um hluti sem gerðust fyrir hálfum mánuði síðanWink.

Surtarbrandshellarnir


Afmæli og endajaxlar

Í dag varð Valbjörg dóttir mín sex ára en hún er núna á Spáni með mömmu sinni þar sem hún hélt upp á afmælið sitt í þriðja skiptið með því að fara í tívolí þarna úti og spjallaði ég við hana áðan og það var alls ekki leiðinlegt í tívolíinu, fyrst var leikskóla afmæli hjá henni, þar á eftir kom afmælisveisla síðasta sunnudag en það varð að halda eina á Íslandi en ég skellti mér einmitt til Keflavíkur til að vera viðstaddur hana og svo er það spænska veislan í dag, samkvæmt þessu sé ég að mamma og pabbi skulda mér ansi margar veislur en hér forðum daga fékk ég bara eina á áriTounge.

Ekki var þetta jafn skemmtilegur dagur fyrir mig en í gær fékk ég hrikalega tannpínu og í nótt bólgnaði ég mikið upp, í tilefni af því þá fór ég til tannlæknis í dag og komst hann að því að einn endajaxlinn var ekki að vaxa eins og hann átti að gera og varð hann að víkja.  Þar sem ég var bólginn þá sagði tannsi mér að deyfingin myndi ekki virka jafn vel og hún ætti að gera, svo var náð skínandi fallega töng og byrjað að toga og toga og toga alveg þangað til að tönnin samþykkti að fara sem var ekkert nærri því strax áiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii þetta var vont.  Þannig að nú er ég í hálfgerðu móki og pakksaddur af öllu pensillíninu, íbúfeninu og hinum verkjatöflunum sem ég er látinn smjatta áSick.

En að einhverju skemmtilegra en hér að neðan er smá myndasyrpa af skvízunni í tilefni afmælisins hennar, held hún sé bara að verða fallegri og fallegri með hverju árinu, maður veit bara ekki hvernig þetta endarGrin.

 

Bara smá kríli þarna Með fullan munninn Verið að knúsa og kjammsa Stelpan er hreinlega óð í hesta Á leiðinni í háttinn Hérna er hún 4 ára Verið að kemba besta vini sínum honum Þyt Hérna er skvízan 5 ára Stelpan orðin 6 ára og er hér að passa litla vinkonu sína Hér er stelpan með stulturnar frá mömmu sinni og Pet Shop dótið frá mér

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband